Bjössi Greifi SKEMMTIKRAFTUR

HVAÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR?

Vantar þig trúbador og/eða veislustjóra á árshátíðina, í brúðkaupið, starfsmannapartýið, óvissuferðina, afmælið, steggjapartýið, gæsapartýið eða bara hvað sem er?
Get einnig komið með trommu- og bassaleikara með mér ef verið er að leita að ekta sveitaballa stemmingu en við köllum okkur þá Smalana :)

Ég hef starfað sem tónlistarmaður í rúmlega 40 ár. Ég er gítarleikari og einn af lagahöfundum Greifanna frá stofnun hljómsveitarinnar árið 1986 til dagsins í dag.

Ég legg metnað minn í að spila það sem við á hverju sinni og er núna í dag þann 07.01.2026 með um það bil 326 lög á prógraminu.
Sjá lagalista

Hafðu samband:

Bókunarsími: 899-8888
Netfang: bjossi@trubador.is
Smelltu hér til að senda skilaboð

Bjössi Greifi

UMSAGNIR / MEÐMÆLI

Afmælis partý
Bjössi kom heim og spilaði fyrir mig í afmælis partýi og allir mjög ánægðir með kallinn og ég mun sko bóka hann aftur, mikið hlegið og mikið gaman. Takk æðislega vel fyrir mig Bjössi....
Ragnheiður Friðriksdóttir

Brúðkaupsveisla
Bjössi var veislustjóri í brúðkaupinu okkar auk þess sem hann spilaði og söng frameftir kvöldi. Hann sá um öll tæknimál og bara reddaði því sem þurfti að redda. Stóð sig alveg frábærlega, fær 10 frá okkur hjónunum og margir gestir búnir að hafa orð á því hve frábær hann var. Topp meðmæli!
Lára

Frábær frammistaða
Ég get mælt með Bjössa trúbador heilshugar, hann er mjög þægilegur í allri umgengni og er frábær tónlistarmaður. Bjössi kann alla helstu slagaranna og syngur mjög vel. Í veislunni minni kom hann inn á tilsettum tíma setti upp allar græjurnar og byrjaði svo á að kynna sig og sagði nokkra brandara. Þe... Lesa meira
Margrét Elíasdóttir