BjÖssi Greifi SKEMMTIKRAFTUR

HVAÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR?

Vantar þig trúbador og/eða veislustjóra á árshátíðina, í brúðkaupið, starfsmannapartýið, óvissufereina, afmælið, steggjapartýið, gæsapartýið eða bara hvað sem er?
Get einnig komið með trommu- og bassaleikara með mér ef verið er að leita að ekta sveitaballa stemmingu en við köllum okkur Þá Smalana :)

Ég hef starfað sem tónlistarmaeur í rúmlega 40 ár. Ég er gítarleikari og einn af lagahöfundum Greifanna frá stofnun hljómsveitarinnar árið 1986 til dagsins í dag.

Ég legg metnað minn í að spila það sem við á hverju sinni og er núna í dag þann 06.10.2026 með um það bil 326 lög á prógraminu.
Sjá lagalista

Hafðu samband:

Bókunarsími: 899-8888
Netfang: bjossi@trubador.is
Smelltu hér til að senda skilaboð

Bjössi Greifi

UMSAGNIR / MEÐMÆLI

Brúðkaupspartý í Mosó
Bjössi er algjör snillingur, hann er þvílíkt flottur tónlistamaður sem náði upp frábærri stemmningu. Allir okkar gestir voru í banastuði og náði hann til allra aldurshópa, en í veislunni okkar voru gestir frá 20 til 92 ára. Takk Bjössi fyrir að hjálpa okkur að gera partýið okkar svona skemmtilegt o... Lesa meira
Ásta og Jói

40 ára afmæli á Eyrarbakka
Bjössi Greifi gerði góða veislu betri. Mjög þægilegur í samskiptum, allt stóðst sem hann sagði. Fagmennska í fingurgómum og hann hélt uppi góðu stuði langt fram á nótt. Líklega var hápunkturinn þegar hann hlóð í trúbador útgáfu a "stendur framan við sviðið", eftir beiðni frá afmælisbarninu. Ta... Lesa meira
Erling Tómasson

Árshátíð hjá Mjólku og Vogabæ
Við hjá Mjólku og Vogabæ viljum þakka Bjössa fyrir frábært kvöld í alla staði. Við erum með mjög blandaðann hóp, meirihlutinn hjá okkur er fólk frá Póllandi og Litháen, svo við vorum mikið að spá hvernig skemmtiatriði við gætum haft. Bjössi reddaði því mjög vel, hann var með nokkur skemmtiatriði sem... Lesa meira
Þóra Kristín Steinarsdóttir