Bjössi Greifi SKEMMTIKRAFTUR

HVAÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR?

Vantar þig trúbador og/eða veislustjóra á árshátíðina, í brúðkaupið, starfsmannapartýið, óvissuferðina, afmælið, steggjapartýið, gæsapartýið eða bara hvað sem er?
Get einnig komið með trommu- og bassaleikara með mér ef verið er að leita að ekta sveitaballa stemmingu en við köllum okkur þá Smalana :)

Ég hef starfað sem tónlistarmaður í rúmlega 40 ár. Ég er gítarleikari og einn af lagahöfundum Greifanna frá stofnun hljómsveitarinnar árið 1986 til dagsins í dag.

Ég legg metnað minn í að spila það sem við á hverju sinni og er núna í dag þann 22.01.2026 með um það bil 326 lög á prógraminu.
Sjá lagalista

Hafðu samband:

Bókunarsími: 899-8888
Netfang: bjossi@trubador.is
Smelltu hér til að senda skilaboð

Bjössi Greifi

UMSAGNIR / MEÐMÆLI

Árshátíð Keilis
Við fengum Bjössa Greifa til að vera veislustjóri á árshátíð Keilis og sjáum ekki eftir því. Fagmaður fram í fingurgóma, öflugur, viðkunnalegur, hress og góður í að lesa salinn. Frábært lagaval og alveg magnaður dansleikur sem þessi eini maður hristi fram úr erminni - allur salurinn dansaði frá fyrs... Lesa meira
Sigrún Svafa Ólafsdóttir

Leikskólinn Rjúpnahæð
Einstaklega gaman að fá Bjössa í heimsókn til okkar í Rjúpnahæð. Börnunum þótti frábært að syngja og dansa við tónlistina hans. Skemmtileg upplifun og fjölbreytt lagaval. Alltaf gaman að fá Bjössa í heimsókn til okkar, takk fyrir okkur.
Hrönn leikskólastjóri

Brúðkaupsveisla á Hilton Hótel
Við giftum okkur 27. júlí s.l. og vorum með veislu á Hilton hótel og ákváðum að ráða Bjössa. Hann hafði tíma, kom og sá fyrir öllu sjálfur, spilaði bara góða tónlist byrjaði rólega og tók smá fútt í endann fólk dansaði og skemmti sér og sumir sögðu að þetta hafði verið skemmtilegasta brúðkaup sem þa... Lesa meira
Guðjón Palsson