Var að eignast fyrsta Taylor gítarinn minn, Taylor GS mini.
Ótrúlega stór hljómur miðað við míní gítar.
Svo er gaman að plokka á svona gítar sem er aðeins minni en venjulega stærð þó ég eigi eftir að venjast honum betur.
Ætli ég kalli hann (eða réttara sagt hana) ekki bara Miss Swift :)
Keypti hana í Hljóðfærahúsinu
en þar kosta þessar spýtur u.þ.b. 100 þúsund án pickup en koma í mjög góðri mjúkri tösku (gigbag).
Í vídeóinu hér fyrir ofan má sjá mig prófa gripinn. Gæðin eru því miður bara af símanum mínum, vonandi að maður sýni meiri metnað í því næsta og taki þetta almennilega upp.
Að spila "fingerpicking" á þennan gítar er algjör snilld!
Bjössi Greifi
Það var Brooks sem benti mér á þennan en hann var með hann í uppsetningu frá búðinni og fannst hann hljóma svo vel að hann hringdi í mig. Ég náttúrulega prófaði gripinn og varð strax mjög hrifinn. Svo keypti ég í hann Lyrics pickup L.R. baggs í Tónastöðinni og fékk Brooks til að skella honum í og fara betur yfir hálsinn á gítarnum, jafna böndin og svoleiðis og eftir það er þessi spýta, Miss Swift, bara snilld og kallar á að það sé spilað á hana.
1 álit
Bjössi Trúbador
22. júlí 2015 - 11:23 Bloggið er í vinnslu svo í augnablikinu er ekki hægt að skrá álit.Það kemur fljótlega svo endilega kíktu við í náinni framtíð og segðu þitt álit.